[Date Prev][Date Next] [Thread Prev][Thread Next] [Date Index] [Thread Index]

Re: Icelandic translation update



Sælir!

Frábært að sjá að allt skuli vera að gerast, ég vil endilega fá að vera með í þessu verkefni (og takk Einar fyrir að minna á mig).

Ég er sammála Einari, einfaldast væri að setja upp svona kerfi sem leyfir einum að tékka út skrá og læsir henni svo á meðan. Og talandi um fötluð kerfi þá gerir SourceSafe nákvæmlega þetta, ekki satt? Það er svo til vefviðmót fyrir SourceSafe svipað ViewCVS. Hugsanlega er þetta leið sem hægt væri að fara.

Kveðja,
Grétar Mar

Einar Jón wrote:
Gott mál

Við tókum þetta náttúrulega ekki í réttri röð eins og Christian talaði
um þ.a. það vantar örugglega nokkra "mikilvæga" strengi. Það væri best
að reyna að klára stage 1 í þessum mánuði.

Það væri fínt ef einhver gæti tekið að sér að setja upp CVS og e.k.
merge úr litlu skránum yfir í aðalskrána (skil ekki hvers vegna ætti
að skipta henni aftur niður með uppfærslum - litlu skrárnar ættu að
vera nýjasta þýðing).
Í okkar tilviki væri þó kannski betra að nota eitthvað "fatlað"
Content Management System sem leyfir bara einum að tékka út hverja
skrá í einu (til að forðast tvíverknað - veit ekki hvort CVS býður upp
á svoleiðis).

Ef það er gert er auðveldara að fá inn fleiri menn, t.d. Grétar Mar
sem hafði samband á listanum fyrir helgi.

Kveðja
Einar Jón

On 09/11/05, Davíð Geirsson <davidgeirs@gmail.com> wrote:
Sælir allir,

Ég vildi koma þessum pósti á debian-i18n listann áfram til ykkar. Við
erum núna komnir í 45% af uppsetningu (Andri sendi inn skrána sem hann
tók með heim). Christian er búinn að taka Íslensku af "prospective
languages" og bæta því inn í valið, þannig að fljótlega verður hægt að
velja Íslensku í debian-installer þróunarmyndunum.

Ég ætla að kíkja aðeins á hvernig best sé að halda utan um
þýðingarnar. Er einhver með tölvu sem er hægt að komast í, sem getur
hýst lítið cronjob (Uppfæra aðalskrána með litlu skránum, og skipta
aftur niður með uppfærslum) og jafnvel cvs þjón?

Með kveðju,
Davíð





Reply to: