[Date Prev][Date Next] [Thread Prev][Thread Next] [Date Index] [Thread Index]

Re: Þýðingarmaraþonkvöld?



Það er mjög gott ef þú getur verið búinn að undirbúa aðeins og ákveða
hvað þarf að gera, Davíð, svo tíminn nýtist sem best til þýðinga.

Ég ætti að geta reddað fimm linuxvélum, en ef menn eiga laptop
vél væri náttúrlega gott að taka hann með.

Eins ef menn eiga einhver ensk-íslensk tölvu- eða tækniorðasöfn sem ekki
er hægt að komast í á netinu.

KBG

On Wed, Nov 02, 2005 at 06:05:51PM +0000, Davíð Geirsson wrote:
> Þann 1.11.2005 skrifaði Kristinn B. Gylfason <kristgy@askur.org>:
> >
> > Snilld.  Ég get reddað aðstöðu í Háskólanum.  Ætla að athuga með tvo
> > menn í viðbót.
> >
> > Hafa menn tillögu um tímasetningu (mér líst best á kvöld á virkum degi).
> >
> > KBG
> >
> [KLIPP]
> 
> Sæll Kristinn,
> 
> Mér sýnist af umræðunni að fólki lítist almennt vel á mánudagskvöldið.
> Gætirðu gáð hvort aðstaða sé laus þá?
> 
> Ég get þá verið búinn að brjóta level1 (stór .po skrá með strengjum
> fyrir allt uppsetningarferlið) upp í nokkrar einingar, sem fólk getur
> svo tekið að sér.
> 
> Annað, eru tölvur á svæðinu, og eru þær keyrandi linux? Þó ég sé ekki
> mikill KDE-maður þykir mér kbabel langbest af þessum þýðingartólum.
> 
> Með kveðju,
> --
> Davíð Steinn Geirsson
> Reykjavik, Iceland
> davidgeirs@gmail.com
> +354 8696608
> 



Reply to: